Hér að neðan má finna svör við algengum spurningum.

Hvernig versla ég í vefverslun ykkar?

Ef þú ert nýr viðskiptavinur þá þarftu að byrja á því að sækja um aðgang.  Eingöngu fyrirtæki geta verslað.

Umsókn um aðgang að vefverslun <---- VANTAR LINK

Umsóknin er fyllt út og send.  Í kjölfarið færðu staðfestingarpóst með netfangi og lykilorði.  EF þú ert þegar viðskiptavinur smellirðu á lásinn hægra megin í horninu og skráir þig inn.

Hvar sæki ég vöru sem ég kaupi á síðunni ykkar?

Allar vörur eru afhentar af lagernum á Korputorgi og eru eru afhentar sólarhring eftir kaup (utan sérstakra álagsdaga).

Hvernig get ég fengið netpöntun senda til mín?

Stærri netpantanir er hægt að fá sendar með sendibíl á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni eru stærri netpantanir sendar með Flytjanda á þá starfsstöð Flytjanda sem er næst póstnúmeri kaupanda.

Smærri netpantanir er hægt að fá sendar með Póstinum.

En ef ég bý úti á landi?

Smávörur eru sendar með Póstinum út á land, heim, á pósthús eða í póstbox. Sendingarleiðir hvers svæðis fara eftir dreifikerfi, þjónustu og starfsstöðvum Póstsins. Þú getur kynnt þér þína valmöguleika á heimasíðu Póstsins hér.

Húsgögn eru send með Flytjanda og afhent á starfsstöð þeirra sem næst er póstnúmeri kaupanda.

Sendingar eru alltaf sendar frá Reykjavík, hvort sem er frá lagernum okkar eða verslun.

Er varan til á lager/í verslun?

Á heimasíðunni má sjá lagerstöðu undir „Er varan fáanleg í verslun nálægt þér?
Grænt sýnir hvar vara er fáanleg (rautt X sýnir hið gagnstæða).

Húsgögn eru seld af lager þannig ef húsgagn er til á lager okkar að Korputorgi er hægt að versla hana í vefverslun. Ef húsgagn er ekki til í vefverslun (á lager) en er sýnd í verslunum er þar um sýningareintak að ræða. Hægt er að kanna í viðkomandi verslun hvort hægt sé að panta vöruna. Húsgögn eru ekki seld úr verslunum nema í undantekningartilfellum (þá t.d. vara sem hættir).

Smávörur/gjafavörur seljast úr verslun og er því grænt til merkis um hvar er hægt að kaupa hana.
Ef vara er sýnileg í vefverslun en er merkt með X í öllum verslunum og lager er hún uppseld en annað hvort væntanleg aftur eða hægt er að sérpanta hana hjá sölufólki í verslunum.

Get ég sérpantað uppselda eða aðra útgáfu af vöru?

Já, oft á það við. Margir þeirra framleiðenda sem við verslum við bjóða upp á ýmsar útfærslur af húsgögnum – þ.e.a.s. aðrar en þær sem við eigum á lager. Athugið einnig að í nokkrum tilfellum eru vörur eingöngu til sýnis á heimasíðu okkar og eru alltaf afgreiddar sem sérpantanir.

Allar sérpantanir og upplýsingar um þær fara í gegnum sölufulltrúa okkar.

Hægt er að hafa samband hér.

Hvert sný ég mér með gallaða/bilaða vöru?

Tilkynningar um galla, ábyrgðarmál eða viðgerðarbeiðnir skal senda á sala@gerheildverslun.is

Til að flýta fyrir afgreiðslu skal taka fram nafn og kennitölu fyrirtækis sem notuð var við kaup og mynd af galla/skemmd þegar við á (ef hægt er).

Hvernig ber ég mig við vöruskil?

Ef þú hyggst skila vöru sem þú hefur keypt skaltu hafa samband við sala@gerheildverslun.is

Get ég borgað með korti?

Já, hægt er að greiða með korti eða sækja um reikningsviðskipti

Hvenær er heildsalan opin?

Mánu - Fös • 09:00 – 17:00
Laugardaga • Lokað
Sunnudaga • Lokað

Hvenær er lagerinn opinn?

Mán - Fös • 11:00 – 18:00
Laugardaga • 13:00 – 17:00
Sunnudaga • Lokað

Hvar er heildverslunin staðsett?

GER Heildverslun

Opið alla virka daga 9 - 17

Bíldshöfði 20, 110 Reykjavík

Hvar er vörulagerinn staðsettur?

Vörulager Korputorgi

Mánudaga og föstudaga: 11 - 18
Laugardaga: 12 - 16

Aðgengi á afturhluta Korputorgs

Blikastaðavegur 2- 8, 112 Reykjavík

Timeout hægindastóll